Stúdentadansflokkurinn
Síðurnar okkar:
03.09.2008 13:38:27 / dans

Inntökuprufur í Stúdentadansflokkinn / Audition for the Student Dance Company

Inntökuprufur í Stúdentadansflokkinn

Stúdentadansflokkurinn er nú að hefja sitt þriðja starfsár og munu inntökuprufur í flokkinn verða nk. laugardag, 6. september, kl. 16 í húsnæði Klassíska Listdansskólans, Grensásvegi 14, 105 Reykjavík.

Í ár mun danshöfundurinn Andreas Constantinou starfa með flokknum. Andreas lagði stund á dans- og leiklist í Bretlandi. Þar hlaut hann margskonar viðurkenningar t.a.m. BTEC Nation Diploma in Theatre, diploma í dansleikhúsi og B.A próf með láði frá Laban School of Dance.

Áætlað er að æfingar verði tvisvar í viku. Lögð verður áhersla á dansleikhús og óskum við eftir fjölbreyttum hópi dansara. Flokkurinn hefur tekið að sér ýmis verkefni í gegnum tíðina og státar af öflugum hópi fólks sem hefur áhuga á listsköpun samhliða akademísku námi.

Vinsamlegast mætið í þægilegum fatnaði sem gott er að hreyfa sig í. Við viljum biðja ykkur um að fylla út þar til gert eyðublað, sem finna má í veðhengi, með helstu upplýsingum um ykkur.

Allir eru velkomnir í prufurnar og vonumst við til að sjá ykkur sem flest.

Bestu kveðjur og hlökkum til að sjá ykkur,
Stjórn Stúdentadansflokksins

-----------------------------------------

(English version)

Auditions for the Student Dance Company

The Student Dance Company is starting it's third year. Auditions for the Student Dance Company will be held next Saturday, 6th of September, at 4pm at Klassíski Listdansskólinn, Grensásvegi 14, 105 Reykjavík.

It is with great pleasure that we introduce Andreas Constantinou as our artistic director. Andreas Constantinou got his training in dance and theater in Britain. There he received various of recognitions including BTEC Nation Diploma in Theatre, diploma in dance theather and B.A degree with honours from Laban School of Dance.

Rehearsals will be two times a week and main emphasis will be on dancetheater. We are looking for dancers with diversity. Please show up for the auditions in comfortable clothing. We also kindly ask you to fill out the form attached to this email, where you give us basic information.

Everybody is welcome to audition. The more the merrier.

Best regards and looking forward seeing you,
The Student Dance Company

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 23:19:31 / dans

DANSÆFING

Næsta æfing er kl. 21 þriðjudag í Listdansskóla Íslands ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 15:01:45 / dans

DANSÆFING

Elskunar mínar nú verð ég að tala við ykkur sem formaður Stúdentadansflokksins!

Sökum þess hversu margar eru búnar að tilkynna mér í dag að þær komist ekki á æfinguna í kvöld neyðist ég til þess að fella æfinguna niður. Ég vil minna hópinn á það að við erum að borga mikla peninga fyrir hverja æfingu og það hefur verið mikið haft fyrir þessum peningum. Persónulega er ég í 30% prófi í dag til klukkan 23 í kvöld en samt sem áður ætlaði ég að mæta á æfingu.

Ég vil biðja ykkur vinsamlegast í framtíðinni að láta mig vita með minnst 24 tíma fyrirvara ef þið komist ekki á æfingu. Þetta er ákveðið "prinsipp" um virðingu gagnvart þeim sem kennir tímann, það kemur ekki vel fyrir flokkinn að afbóka æfingu með stuttum fyrirvara.Við einfaldlega höfum ekki efni á því að halda æfingar þar sem þrjár mæta eins og gerðist sl. þriðjudag. Það er mikilvægt að við mætum allar á æfingar. Næsta æfing er fimmtudag kl. 20 í Listdansskóla Íslands.

MA


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 14:08:46 / dans

Næstu æfingar

Næsta æfing er á þriðjudaginn með Steinunni Ketils kl. 20 í LÍ. Önnur æfing verður svo á fimmtudaginn  í næstu viku kl. 20 í LÍ....þá er komin smá regla á þetta;) við munum s.s. hafa þessa æfingartíma næstu 2-3vikurnar.

Kv. MA


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 14:42:00 / dans

Dans

Hæ hæ,

Það er æfing kl. 20 þriðjudag  í Listdansskóla Íslands !

Ég lofaði góðri mætingu ......só síííí jú there dúllur



» 5 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 11:07:49 / dans

Jæjaaaaaa loksins

Eftir mörg símtöl og mikla þolinmæði er komin einhver niðurstaða á tíma hjá okkur.

Í næstu viku þá er ég að reyna að púsla saman að fá Ólöfu danshöfund og kennara í LHÍ til að taka okkur í tvo tíma. Eftir það kemur hún elsku Steinunn okkar og  kennir okkur þriðjudaga og fimmtudaga kl.20-21:30 í Listdansskólanum í 2-3 vikur. Síðan kemur hjartaknúsarinn Tony og verður með okkur til apríl/fram að prófum ;)

Hope this sounds good beibs 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 13:47:44 / dans

djanssss

Hæ girls,

Tony er busy þessa vikuna, en í kvöld verða nemendur Tonys og gesta-chorographer með smá sýningu kl. 20 í studíóinu í LHÍ og hann bauð okkur að koma :.......

Intrested ladies?????.................vinsamlegast commentið elskunar ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 15:49:43 / dans

Plana lana mana plana

Hæ stelpur,

Mig langaði að hitta ykkur og fara aðeins yfir stöðu mála og framtíðarplön hjá Stúdentadansflokknum. Eru þið til í að hittast á morgun miðvikudag kl. 20 á B5 ?

Endilega kommentið ;)

Sjáumst hressar,
MA

» 14 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 23:24:54 / dans

Engin Aukaæfing!!

Engin æfing á morgun stelpur, heyrið í mér ef það er eitthvað s:6633800. Vona að þið séuð að sjá þetta tímanlega, annars er ég búin að vera í allt kvöld að reyna að redda númerunum ykkar. Við verðum bara að gera þetta í vikunni, get auðveldlega fengið sal.

Kveðja Unnur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 23:08:04 / dans

AUKAÆFING???

Sælar stúlkur þetta er Unnur sem skrifar, mig langaði svo að forvitnast um hvort að þið hefðuð áhuga á að vera kannski með aukaæfingu niðri í JSB,lágmúla á sunnudag kl.11 til 12 jafnvel lengur (ég fékk salinn lánaðan á þeim tíma).

Þannig er mál með vexti að ég kemst ekki á skipulagðar æfingar sökum þess að ég er alltaf að vinna. Mér finnst svo leiðinlegt að missa svona mikið af þannig ég var að vona að þið gætuð kannski kennt mér það sem þið eruð búnar að vera að gera, rifja upp og þannig.

Er einhver áhugi fyrir því hjá ykkur?

 

Kveðja Unnur. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 09:09:16 / dans

Jibbíkólajeiiii

Sælar dömur,

 

Æfing hjá Mr. Tony í dag kl. 17:00-18:30 og á sama tíma nk. föstudag. Æfingarnar í þessari viku eru í húsakynnum LHÍ, í skúr á bakvið skólann að Sölvhólsgötu. Hringið í mig ef þið finnið þetta ekki ;)

 

Hlakka mikið til að sjá ykkur í brjáluðu dansstuði,

MA


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 16:07:25 / dans

djans

Sælar ;)

Ég náði loksins Mr. T í gær, hann er mjög busy í janúar en ætlaði að gefa mér áætlunina sína í næstu viku og þá ætlum við að mixa eitthvað saman.

Svo það er engin æfing í kvöld.....þið fáið að horfa á leikinn Ísland v. Svíþjóð í staðinn :D

stay tuned,

MA 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 10:17:51 / dans

hey lövlís

Hæhæ,

Planið er að hittast nk. þriðjudag kl. 20:10 í Listdansskólanum og horfa á videó, bera saman hugmyndir, flippa í sölunum o.s.frv. 

Ég læt ykkur vita um leið og ég heyri eitthvað í Mr. T ;O)

Síjú,

MA 


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 16:28:49 / dans

HÆ ´skunar

Hæ sætulínur,

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt gamalt og gott:D

Nú hefjast æfingar að nýju og ég get ekki beðið eftir að komast með ykkur í danssalinn og fá að svitna vel :D......ég er búin að tala við Tony og hann verður með okkur við erum bara eftir að festa tímann. Við erum aftur í húsnæði Listdansskóla Íslands og það er allt klappað og klárt.

 Ég var að hugsa hvort það væri ekki sniðugt að við hittumst á miðvikudag, fimmtudag eða um helgina og byrjuðum að plana okkur8).....ég er allavega með eitt mjög spennandi verkefni í september sem við gætum tekið þátt í ;)

 Ykkar, MA


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 16:17:59 / dans

æfingar

Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20 í Listdansskóla Íslands.

Við förum svo á kaffihús á næstunni, til að kynnast betur og spjalla um það sem er framundan hjá flokknum ;)

Sjáumst, MA


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 45377
Dagsetning
24. maí 2013
Myndasöfn